Sannar gervigreindarmyndir og Sauðburður
Þegar rithöfundur fær ekki listamannalaun eitt árið ákveður hann að ráða sig í Sauðburð. Brátt kemst hann að því að bærinn sem hann hefur ráðið sig á er allt annað en hefðbundinn. Stórir karakterar og margvíslegar pælingar aðkomumanns úr borginni mynda frásögn sem er áleitin og mennsk, en ekki síst spennandi. Hermann Stefánsson ræðir við okkur um sína nýjustu bók, Sauðburð í Lestinni í dag. Við pælum svo í myndefni og sannleika á tímum spunagreindar. Ofurhugar í Skjálfandafljóti, Elliði Vignisson, fljúgandi furðuhlutir og bandaríski myndlistarmaðurinn Trevor Paglen koma meðal annars við sögu…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.