Grétar Örvarsson föstudagsgestur og sumarmatarspjall
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Grétar Örvarsson. Hann þekkja auðvitað flestir úr hljómsveitinni Stjórninni þar sem hann og Sigga Beinteins hafa sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, til dæmis í Eurovision og mun víðar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar á Höfn í Hornafirði, þar sem hann ólst upp á heimili ömmu sinnar og afa. Hann sagði til dæmis sögur af því þegar heimilið breyttist í fæðingarheimili, því amma hans var ljósmóðir og svo þegar hann byrjaði að spila fyrir dansi fimmtán ára á hótelinu á Höfn. Við fórum á handahlaupum með honum…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.