Digger og einkarými farsímans
Í Lestinni í dag fjöllum við um nýja kvikmynd sem gagnrýnendur geta ekki verið sammála um. Digger, í leikstjórn Alejandros Inárritu, fjallar um olíujöfurinn Digger Rockwell, sem leikinn er af Tom Cruise. Þrátt fyrir stórleikara og gríðarlegt fjármagn gekk opnunarhelgin vægast sagt illa en Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands er ekki sama sinnis. Myndin er þess eðlis að erfitt er að ræða hana án þess að spilla söguþræðinum og því setjum við viðvörun á umfjöllun okkar í dag, vilji hlustendur láta koma sér á óvart í bíó. Rithöfundurinn og skáldið Birgitta Björg…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.