Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands. Silja á langan akademískan feril að baki í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Flestir þekkja hana sem sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og alþjóðamálum og er hún tíður gestur í fjölmiðlum fyrir kosningar úti í heimi. Silja tók BA próf og MA gráðu í Bandaríkjunum en þegar hún var í doktorsnámi í Californiu gerðist alvarlegt atvik í hennar lífi sem hafði mikil áhrif á hana og varð til þess að hún flutti til Íslands og seinkaði doktorsgráðunni sem hún tók þó síðar á Írlandi…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.