Meta verður MAGA, fullt tungl, áþreifanlegt internet
Tæknibransinn í Bandaríkjunum hefur flykkt sér á bakvið við Donald Trump að undanförnu. Margir áhrifamenn í Kísildalnum lýstu yfir stuðningi við hann í aðdraganda kosninganna en þeir sem ekki þorðu að veðja á Trump hafa reynt að bæta honum það upp eftir að hann var kosinn með fjárframlögum og yfirlýsingum sem ættu að gleðja forsetann verðandi og vini hans. Forstjóri Meta, Mark Zuckerberg, hefur kannski gengið hvað lengst í slíku daðri. Hann ætlar að hætta ritstkoðun á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum sínum, leyfa fólki að segja hvað það vill um innflytjenda- og kynjamál. Hann ætlar hætta…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.