skinny.

Latest / Fotbolti.net

Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við?

Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það. Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar. Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leiktíð en hvað gerist næst eftir að þessum langa Kristianstad-kafla lýkur? Það verður fróðlegt að sjá…

The skinny

The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.