SheSleep, Parísarhjól og veðurspjallið
15. mars er alþjóðlegur dagur svefns, eða World sleep day og er hann lokadagur Sleep Awareness Við kynntumst af því tilefni nýju smáforriti, sem er gefið út af Betri svefni, þetta er svefnsnjallforrit og það er það fyrsta sinnar tegundar í heiminum, en það er eingöngu fyrir konur. SheSleep heitir það. Forritið gerir konum kleift að kortleggja eigið svefnmynstur, sækjar sér meðferð við svefnvanda í gegnum forritið, fylgjast með tíðahring sínum og áhrifum hormóna á svefn og fleira. Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.