Þjóðarpúls Lóu, rapptextar sem sönnunargögn, sungið á ísl-ensku
Það er dimmt og það er ömurlegt veður. Það er kominn vetur og skammdegi. Lóa fer í Smáralindina og tekur púlsinn á þjóðinni. Er þunglyndið að hellast yfir fólk, eða er það bara farið að hlakka til jólanna? Í dómssal í Atlanta í Georgíuríki Bandaríkjanna er nú réttað yfir einum þekktasta rappara heims. 31 árs grammíverðlaunahafanum og íslandsvininum Yung Thug. Hann er kærður fyrir að standa fyrir skipulagðri glæpastarfsemi í glæpagenginu Young Slime Life. Rapparinn á að hafa notað metsölutónlist sína, útgáfufyrirtæki og samfélagsmiðla til að auglýsa gengið - sem er sakað um ótal glæpi, meðal…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.