Bein útsending úr Múlabæ
Mannlegi þátturinn var sendur í dag út frá Síðumúla, nánar tiltekið úr Múlabæ dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja. Hugmyndin að þessari fyrstu dagdvöl landsins varð reyndar til á ári aldraðra, 1982 en verkefnið þróaðist svo í samvinnu þriggja félagasamtaka og var Múlabær opnaður í janúar árið 1983, fyrsta dagdvöl landsins ætluð öldruðum. Múlabær á sér farsæla sögu og hafa sömu aðilar staðið að rekstrinum nánast frá upphafi. Í dag er stjórn staðarins skipuð af aðilum frá SÍBS, Félagi eldri borgara í Reykjavík og Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Við töluðum í dag við Þórunni Bjarney…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.