Flóttamannaþorpið á Bifröst
Í ársbyrjun 2022 voru rétt um 100 manns skráðir til heimilis á Bifröst - en þeim fjölgaði umtalsvert þegar stjórnvöld sömdu við háskólann og Borgarbyggð um að opna þar móttökustöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu, eftir að Rússar réðust þar inn. Í dag búa þar 305 manneskjur, þar af 228 með úkraínskt ríkisfang. Ekki voru og eru allir jafn sannfærðir um að þetta sé heppilegt athvarf fyrir fólk á flótta undan stríðsátökum. Friðsæld er vissulega óvíða meiri en í uppsveitum Borgarfjarðar, en í þorpinu er litla sem enga þjónustu að fá, það er fjarri öðru þéttbýli og almenningssamgöngur stopular svo…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.