
78. Tölvuleikja-leikari - Viðtal við Aldísi Amah
Hvernig er það að leika í tölvuleik? Fara í búninginn og láta hreyfifanga (e. motion capture) allt sem þú gerir? Til að finna það út þá fengum við leikkonuna Aldísi Amah Hamilton í heimsókn, en hún leikur aðalhlutverkið í leiknum Echoes of the End frá Myrkur Games. Leikurinn er al-íslenskur og hefur verið ræddur hér áður, þegar við tókum viðtal við Halldór Snæ, framkvæmdastjóra Myrkur. Arnór Steinn og Gunnar ræða margt við Aldísi. Hún er mikill tölvuleikjaspilari og hefur margt að segja um það. Við förum einnig vel yfir upplifun hennar að leika í tölvuleik, hvernig það kom til, hvernig það er…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.