Andkristur, hnignun Spotify, Valur fær loksins listamannalaun
Friedrich Nietzsche er einhver alræmdasti hugsuður vestrænnar nútímasögu og alltaf virðast nýjar kynslóðir heillast af skrifum þessa þýska heimspekings, fólk verður heltekið. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Andkristur frá árinu 1888, bók með ógnvænlegan titil, bók sem er skrifuð af knýjandi þörf, jafnvel heift gagnvart kristinni trú, en líka djúpu innsæi og mannskilningi. Andkristur er með því síðasta sem kom frá Nietzsche en aðeins nokkrum mánuðum síðar fékk hann taugaáfall, missti vitið, veiktist á geði. Sigríður Þorgeirsdóttir mætir í Lestina og ræðir um Jesú Krist og Andkrist…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.