Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið
Sterkasta briddsmót sögunnar, sem fram hefur farið hér á landi, hófst í gær og það verður spilað í fjóra daga í Hörpu. Margar af skærustu stjörnum briddsheimsins taka þátt. Áhugi á bridds hefur tekið kipp undanfarið hérlendis en um tuttugu þúsund Íslendingar spila bridds reglulega. Við forvitnuðumst í dag um bridds og því kom forseti Bridgesambands Íslands, Brynjar Níelsson, í þáttinn til að fræða okkur, bæði um bridds og alþjóðlegu mótin tvö sem fara fram hér á landi, því þegar hinu fyrra lýkur þá er blásið nánast um leið til leiks í öðru alþjóðlegu móti í Hörpu. Í dag lifir fólk almennt…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.