Herská Frederiksen og Bretar smjaðra fyrir Trump
Bogi Ágústsson fjallaði um dönsk varnarmál og heimsókn Trumps Bandaríkjaforseta til Bretlands. Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana sagði í gær að Danir ætluðu að kaupa langdrægar eldlaugar. Frederiksen lýsti ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem þáttaskilum í dönskum varnarmálum. Aðeins eru örfáir dagar frá því að tilkynnt var um kaup á loftvarnarflaugum sem voru mestu vopnakaup í danskri sögu. Donald Trump Bandaríkjaforseti er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gestgjafarnir hafa skemmt honum með íburðarmiklum seremóníum og skrautsýningum. Allt var þetta á bak við lokaða múra Windsor-kastala…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.