Kanadískir hermenn í hernáminu, Léttsveitin þrítug og veðurspjall um sólgos og héluísingu
Við töluðum í dag við Karen Lilju Loftsdóttur, doktorsnema í sagnfræði við Queen's háskólann í Ontario í Kanada. Doktorsverkefni hennar skoðar með menningarsögulegri nálgun kanadíska hermenn sem voru á Íslandi á hernámsárunum. Flestir vita að Bretar hernámu Ísland árið 1940 og svo Bandaríkjamenn frá 1941, en færri vita að um það bil 2500 hermenn frá Kanada hafi verið á Íslandi og sumir þeirra af íslenskum ættum. Við hringdum til Kanada og fengum Karen Lilju til að segja okkur aðeins frá þessu doktorsverkefni sínu. Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur fagnar 30 ára afmæli í ár og á laugardaginn…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.