Anton leitaði upprunans á Indlandi og Haukur Morthens 100 ára
Við heyrðum sögu Antons Gunnars Ólafssonar í dag. Hann var ættleiddur sjö mánaða gamall, frá Indlandi, af hjónum frá Akureyri. Hann hefur hugsað um uppruna sinn frá barnsaldri, óhjákvæmilega áttaði hann sig á því að hann var ólíkur öðrum börnum í kringum sig. Hann fór þó ekki að hugsa af alvöru um það að leita að uppruna sínum fyrr en eftir að faðir hans lést árið 2016. Hann fékk í sínar hendur skjölin sem fylgdu honum í ættleiðingunni, og eftir að hafa leitað ráða, meðal annars hjá vinkonu sinni sem hafið staðið í sömu sporum, fór hann loks til Indlands í fyrsta sinn. Hann er nýkominn heim…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.