Skipulagðir brotahópar hafa fest sig í sessi og hvað með þýska herinn?
Greiningardeild ríkislögreglustjóra gaf í dag út sína fyrstu skýrslu í fjögur ár um skipulagða brotastarfsemi. Hún staðfestir að þessi starfsemi hafi fest sig kyrfilega í sessi hér á landi sem sést kannski best á því að brotahópum hefur fjölgað um helming á áratug; í dag er talið að þeir séu tuttugu - þetta eru mis-fjölmennir og mis-skipulagðir hópar en allir með einbeittan brotavilja; sumir byggja á áralöngum kunningsskap, aðrir tengjast glæpagengjum í öðrum löndum. Þýska hernum er ætlað lykilhlutverk í vörnum Evrópu. Hann er sá stærsti í álfunni og þrjú og hálft prósent af landsframleiðslu…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.