Una Þorleifsdóttir og maðurinn sem elskar tónlist
Una Þorleifsdóttir var í hópi þeirra sem kom á fót nýju BA-námi í sviðslistum sem hét þá fræði og framkvæmd, en heitir í dag sviðshöfundabraut. Á morgun verður kynnt nýtt meistarnám í sviðslistum í Listaháskólanum og að því tilefni kom Una og ræddi sviðslistir, nám og samfélagslegt mikilvægi sviðslistaverka. Þórir Baldursson, tónlistarmaður, hefur unnið með fjölda þekktra tónlistarmanna. Hann á sér merkilega sögu sem Jóhann Sigmarsson sá að tilefni var til að segja í heimildarmynd. Sú mynd hefur litið dagsins ljós og heitir Maðurinn sem elskar tónlist. Jóhann og Þórir ræða við Jóhannes Bjarka.
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.