Ízleifur, heterótópía vitavarðarins, afþreyingargildi mannshvarfa
Við ræðum við ritstjóra hlaðvarpa hér á Rúv, sem vinnur þessa dagana að nýjum þáttum sem fjalla um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni árið 2019, í samhengi við vinsældir svokallaðra True-crime hlaðvarpa. Hvernig skal gera gott hlaðvarp sem fjallar um mannshvarf? Og hvað ber að varast? Guðrún Úlfarsdóttir býr og starfar í húsi sem er lífsbjörg fólks sem hún mun aldrei hitta; hún er vitavörður. Á dögunum kom út fyrsta sólóplata Ízleifs, en hann hefur verið afkastamikill pródúser í hipphopp senunni um nokkurra ára skeið. Við hringjum til Berlínar og skyggnumst bak við tjöldin hjá Ízleifi…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.