
Beta um nýtt starf og tímann eftir Kristianstad
Elísabet Gunnarsdóttir var í gær ráðin landsliðsþjálfari Belgíu eftir að hafa verið í smá fríi frá fótbolta. Hún skrifaði undir samning til sumarsins 2027. Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli. Beta, eins og hún er oftast kölluð, hefur verð án starfs síðan hún hætti sem þjálfari Kristianstad haustið 2023. Hún var sterklega orðuð við Aston Villa á Englandi í fyrra en ekkert varð úr því að hún tæki við liðinu. Þar á undan var hún orðuð við stórlið Chelsea…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.