Mennirnir sem ég elska, Justice, áköf mæðrun
Eftir vægt dramakast í líkamsræktarstöð í gærkvöldi fór Bjarni Daníel að hugsa um alla mennina sem hann elskar, en hefur hægt og rólega verið að fjarlægjast. Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í feril franska raftvíeykisins Justice í aðdraganda plötu þeirra Hyperdrama, sem er væntanleg til útgáfu með vori. Við endurflytjum innslag Lóu Bjarkar frá því á síðasta ári, þegar hún ræddi við Auði Magndísi Auðardóttur og Önnudís Gretu Rúdólfsdóttur, fræðikonur á menntavísindasviði Háskóla Íslands, um hugtakið áköf mæðrun. Lagalisti: Trúbrot - My Friend And I Mannakorn - Gamli góði…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.