Latest / Gervigreindarklúbburinn

51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús
Af hverju að hringja í Krissa Haff þegar ChatGPT getur peppað þig allan sólarhringinn?
Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins er gestur minn Kristján Hafþórsson, betur þekktur sem Krissi Haff, félagsfræðingur, fyrirlesari og hlaðvarpsstjórnandi. Við ræðum jákvæðni án innantómra frasa, hugrekkið til að vera maður sjálfur og það sem mannleg samskipti hafa fram að færa á tímum gervigreindar.
Krissi segir frá því hvernig missir föður hans á unglingsárum mótaði sýn hans á lífið og hvers vegna jákvæðni snýst ekki um að vera alltaf hress. Við tölum um eiturjákvæðni, mikilvægi þess að halda í vonina…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.