Eldhúsdagur, innleiðing farsældarlaga gagnrýnd og fleiri pólitískir bæjarstjórar
Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars. Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.