Skrítin ásælni Trumps í Grænland
Margir furða sig á röksemdafærslu bandarískra ráðamanna er þeir krefjast yfirráða á Grænlandi; varnarsamningur Danmerkur og Bandaríkjanna leyfi Bandaríkjamönnum nánast allt sem þeir vilja. Margt í málflutningi Donalds Trumps og annarra ráðamanna er beinlínis rangt, forsetinn hefur til dæmis haldið því fram að 30 þúsund manns búi á Grænlandi. Íbúar landsins eru nær tvöfalt fleiri eða tæp 57 þúsund.
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.