Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni
Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi. Við ræddum við Karlottu í þættinum í dag og spurðum hana til dæmis af hverju hún hreinlega er að standa í þessu? Mars Baldurs er verðlaunað…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.