Tollar Trumps á íslenskan innflutning hækka
Nýjasta útgáfan af lista Trumps yfir verndartolla á innflutningi varnings frá hátt í eitt hundrað ríkjum til Bandaríkjanna var birt að kvöldi 31. júlí. Í flestum tilvikum hækkuðu tollarnir nokkuð frá því sem áður hafði verið tilkynnt og Ísland er þar ekki undanskilið. Tíu prósenta tollur var lagður á íslenskan innflutning til Bandaríkjanna í apríl, en það er lágmarkstollur á innflutning þangað. Hvorutveggja íslensk stjórnvöld og íslensk fyrirtæki gerðu því skóna að þar með væri málið afgreitt. Trump leggur jú áherslu á að tolla varning frá ríkjum sem selja meira til Bandaríkjanna en þau kaupa…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.