
Öryggisstjóri KSÍ: Við og UEFA fylgjumst vel með þróuninni í Tyrklandi
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þann 14. nóvember mætast Tyrkland og Ísland í undankeppni EM í Istanbúl. Eins og allir vita voru mikil læti í kringum viðureign þessara liða á Laugardalsvelli fyrr á árinu og Íslendingar urðu fyrir netárásum. Nú standa Tyrkir í hernaði í Sýrlandi og leikmenn landsliðsins fögnuðu að hermannasið í liðnum landsleikjaglugga þó talað sé um að ekki eigi að blanda pólitík og fótbolta saman. Þessi hegðun er til skoðunar hjá UEFA. Rætt var við Víði Reynisson, öryggisstjóra KSÍ, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.