Dagur íslenska táknmálsins, fjármálin á mannamáli og Reinhold lesandi vikunnar
Dagur íslenska táknmálsins er á morgun 11. febrúar en þann dag var Félag heyrnarlausra stofnað. Íslenska táknmálið var viðurkennt sem „jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna í milli“ með lögum árið 2011 og bannað er að mismuna fólki eftir því hvort málið það notar. Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið á Íslandi og er fyrsta mál um 300 Íslendinga. Við ræddum við Valgerði Stefánsdóttur sem er formaður málnefndar um íslenskt táknmál í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, kom svo til okkar í dag, eins og aðra mánudaga eftir…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.