Skátafélagið Hraunbúar 100 ára, Sagan af þér að breyta heiminum og póstkort frá Magnúsi
Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Grétarsdóttur sveitaforingi, í dag. Það er ríkt í okkur að vilja láta gott af okkur leiða, en það eru ekki allir sem vita hvernig á að snúa sér þegar að því kemur. Eins getur verið snúið að ganga ekki…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.