Þórhildur Örvarsd. föstudagsgestur, matarspjall um bixímat
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Þórhildur er fædd og uppalin á Akureyri og hóf snemma feril sinn sem söngkona enda sannarlega fædd inn í mikla tónlistarfjölskyldu. Á ferlinum hefur hún tekist á við ólíka stíla í tónlistinni, til dæmis óperur og söngleiki, heimstónlist, popp, jazz og kvikmyndatónlist. Þórhildur hefur í mörg ár kennt söng og raddþjálfun víða. Þórhildur sagði okkur betur frá sjálfri sér, æskunni á Akureyri, námsárum í Reykjavík, Danmörku og nú síðast í Skotlandi og svo fengum við að vita hvað hún er að fást við þessa dagana…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.