Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella og kengúrusteik í matarspjallinu
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í dag voru söngdívurnar og Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella Lárusdóttir. Þær eru báðar á kafi í undirbúningi tónleika og ekki bara Frostrósatónleika heldur eru þær út og suður eins og margt tónlistarfólk þessa daganna. Við ræddum við þær í dag um lífið og tilveruna, Frostrósirnar og vertíðina í desember. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um gamla uppskriftarbæklinga sem fengust gjarnan í verslunum sem innihalda uppskriftir að hátíðarmatnum. Einn bæklinganna innihélt meðal annars uppskriftir að kengúrusteik og hérasteik…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.