Ólöf og Ljósið, Kallaspjall Bjarna og þjóðlistahátíð
Við fræddumst um átak hjá Ljósinu endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Átakið snýst um að safna nýjum Ljósavinum og að virkja hóp aðstandenda sem standa að einstaklingi með krabbamein gerist Ljósavinur. Þegar einhver úr hópnum greinist með krabbamein er Ljósið til staðar til að grípa og veita stuðning sem hópurinn hefur mögulega ekki ráð eða burði til. Ólöf Erla Einarsdóttir greindist með krabbamein á Covid tíma fyrir nokkrum árum og við heyrðum hennar sögu og hvernig hún upplifði stuðning vinkvenna og Ljóssins. Átakið í ár kallast…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.