skinny.

Latest / Tölvuleikjaspjallið

120. Kisi á þysi - leikurinn Stray

Hvað er hægt að segja marga kattabrandara þegar fjalla á um kattaleik? Í stuttu máli; marga. Arnór Steinn og Gunnar dýfa loppunum í frábæra leikinn Stray sem kom út fyrir ekki svo löngu. Um er að ræða stutt og hnitmiðað ævintýri þar sem kisikis, undir þinni stjórn, fer í svaðilför frelsis, safnar nótnablöðum og mjálmar stanslaust. Leikurinn er það stuttur að það hefði ekki verið hægt að fjalla um hann án þess að tala um söguna alla. Þessum þætti fylgir því miður höskuldarviðvörun, á einum tímapunkti ræðum við alla söguna og endinn. Það er varað hlustendur við bæði hér og í þættinum, endilega…

The skinny

The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.