Alda Music og Rás 2 í gervigreindarstorminum, Tár úr steini
Í lok október var tilkynnt að Universal Music Group hefði fallið frá lögsókn sinn gegn gervigreindarfyrirtækinu Udio sem hefur haldið úti einu vinsælasta spunagreindarforritinu á sviði tónlistar. Um leið og málið var látið niður falla tilkynntu fyrirtækin tvö að þau ætluðu í samstarf. Á næsta ári mun koma út forrit þar sem notendur geta búið til gervigreindartónlist, en tónlistin sem notuð til að kenna gervigreindinni verður ekki illa fengin, heldur notuð með leyfi rétthafanna og þeir munu þá fá hluta af ágóðanum. Íslenska útgáfufyrirtækið Alda Music er hluti af Universal Music Group og við…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.