Streita um jólin, vinkill um Rauðhettu og Bjarni lesandinn
Við höfum annað slagið núna í desember verið með góða gesti sem hafa gefið góð ráð og hugleitt hvernig við getum lækkað spennustigið og hjálpað okkur að hugsa um það sem skiptir mestu máli á aðventunni, að njóta og einfalda hlutina eins og við getum. Ásta Arnardóttir jógakennari var hjá okkur í síðustu viku og í dag kom til okkar Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi frá Fyrsta skrefinu og við fórum yfir þessa streituvalda og hvað er hægt að gera til að vinna gegn streitu og kvíða. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði hann um aðventuævintýri, jólatilhlökkun og…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.