Ástin á tímum Tinder #5
Dr. Love er á línunni. Við þurfum á hjálp hans að halda. Rétt fyrir aldamót, fyrst í gríni en svo af fullri alvöru, hélt Páll Óskar úti dagskrárliðnum Dr. Love á útvarpsstöðinni Mono. Í þessum þætti af ástinni á tímum Tinder förum við djúpt inn í menninguna á Grindr, pælum í því hvaða áhrif það hefur að byrja ævina inni í skápnum og heyrum hvernig draumaprinsinn kemur þegar þú átt síst von á honum. Dr. Love talar hreint út, þú finnur ekki ástina ef þú ert bara heima að lesa, þú þarft að hætta þér út í þennan frumsskóg. Þó það sé ógnvekjandi.
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.