Sjúk ást og spilið Sjúk flögg og 3dagar.is
Það getur stundum verið erfitt að skilja á milli heilbrigðra og sjúkra sambanda. Þá er gott að skoða hegðun, bæði sína eigin og annarra, og meta hvert tilvik fyrir sig. Sjúk flögg er umræðuspil sem skoðar heilbrigða og óheilbrigða hegðun í samböndum og hentar ungmennum jafnt sem fullorðnum. Spilið er gefið út í tilefni af því að ný Sjúkást herferð er hafin, en Sjúk ást er fræðslu- og forvarnarverkefni á vegum Stígamóta, þar sem markmiðið er að fræða ungmenni, og bara alla um mörk, samþykki og heilbrigð sambönd með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi áður en það er framið…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.