Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á að tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.