Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald
Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar hans á meðan hann var á sjúkrahúsinu eftir aðgerðina. Inga hefur ítrekað sagt að upplifun þeirra Guðmundar af aðdraganda þess að hann sagði af sér sé ólík. Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn - það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi - verður lagt á frá og með 1. maí á næsta ári, samkvæmt drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var kynnt í vikunni.
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.