skinny.

Latest / Mannlegi þátturinn

Íslenski dansflokkurinn, gullmoli úr safni frá 1995 og Gísli lesandi vikunnar

Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan. Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd…

The skinny

The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.