Notkun svefnlyfja, hverjir eru ráðherrarnir? Gjörunnin matvæli
Notkun svefnlyfja getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér og skert lífsgæði, sérstaklega eldra fólks, en í þeim hópi er notkun svefnlyfja mest. Rannsóknir sýna að langtímanotkun svefnlyfja sé gagnslaus, en þau geta haft alvarlegar hættur í för með sér og neikvæð áhrif á heilsuna. Hildur Þórarinsdóttir formaður Félags íslenskra öldrunarlækna og Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá mikilvægi þess að minnka svefnlyfjanotkun og herferðinni „Sofðu vel“. Við skruppum svo út með hljóðnemann og spurðum fólk á förnum vegi…
The skinny
The skinny isn't ready yet — notes appear once the transcript is processed.